Dýrð Í Dauðaþögn

Ásgeir

Composed by: Song: Ásgeir Trausti Einarsson | Lyrics: Júlíus Aðalsteinn Róbertsson
Tak mína hönd
lítum um öxl, leysum bönd
Frá myrkri martröð sem draugar vagg’ og velta
lengra, lægra, oft vilja daginn svelta

Stór, agnarögn
oft er dýrð í dauðaþögn
Í miðjum draumi sem heitum höndum vefur
lengra, hærra á loft nýjan dag upphefur

Finnum hvernig hugur fer
frammúr sjálfum sér
Og allt sem verður, sem var og sem er
núna

Knúið á dyr
og uppá gátt sem aldrei fyrr
Úr veruleika sem vissa ver og klæðir
svengra, nær jafnoft dýrðardaginn fæðir
    Page 1 / 1

    Lyrics and title
    Chords and artist

    reset settings
    OK